Sannleikurinn

Punktar

Athyglisvert er, að það eru fjölmiðlar í eigu 365, sem hafa veitzt að Séð og heyrt og DV fyrir að segja sannleikann í svokölluðu Bubbamáli. Aðrir fjölmiðlar hafa látið sér fátt um finnast. Skýringin er auðvitað sú, að Stöð 2 og Talstöðin eru ekki að leita sannleikans, heldur að firra sig ábyrgð með innanhússstríði eins og Páll Ásgeir Ásgeirsson sagði réttilega á spjallrás Blaðamannafélagsins. Kjarni málsins gleymist oft, þegar lélegir kranablaðamenn froðufella. Því er rétt að minna enn einu sinni á, að hvert einasta orð DV í þessu Bubbamáli hefur verið sannleikanum samkvæmt.