Sé ekki, heyri ekki og les ekki

Punktar

Sé ekki fréttir, heyri ekki og les ekki, þar sem ég er núna. Les ekki heldur blogg eða fésbók. Hef þó gemsa, en bandvíddin er svo hæg og dýr, að ég get ekki legið á netinu. Sennilega landsins mesta okur. Hins vegar er fljótt og ódýrt að senda textablogg. Þess vegna tek ég þátt í umræðunni. Sendi blogg inn í eitthvað, sem lítur út fyrir mér eins og svarthol. Veit ekki, hver umræðan er núna. Röfla bara einn í heiminum: Karlinn á kassanum einhvers staðar uppi á heiðum eða frammi í dölum. Ætli ég sé ekki bara illa veruleikafirrtur í þessu eintali í umræðunni?