Seðlabankinn trausti rúinn

Punktar

Seðlabanki Íslands nýtur einskis trausts, hvorki innanlands né utan. Honum er talið stjórnað af bjánum. Bandaríski seðlabankinn vill ekki gera sama samning við Ísland og hann gerði við Norðurlönd. Öryggisálag á Ísland er komið upp í skýin af þessum völdum. Menn treysta ekki seðlabanka, sem er notaður til að útvega aflóga forsætisráðherra kaup ofan á rífleg eftirlaun. Menn líta erlendis á Davíð Oddsson sem fyrirbæri. Í kringum hann í bankanum eru veikir undirbankastjórar og deildarstjórar. Þeir hafa hvorki bein í nefinu né neina fjármálaþekkingu til að skrúfa fyrir Davíð og smjörklípurnar hans.