Sérfræðingar í sjálftekt

Punktar

Formenn slitastjórnar og skilanefndar Glitnis eru með sjö milljónir króna á mánuði. Þá er eftir að draga frá kostnað, sem getur ekki verið mikill. Alls kostaði rekstur slitastjórnar og skilanefndar Glitnis fimm milljarða króna árið 2009. Fimm milljarða króna. Ekki bara þjófnaður, þetta er hrein og klár geðveiki. Græðgin lætur ekki að sér hæða. Gamla bankagræðgin blómstrar sem aldrei fyrr, þótt allt dæmið sé gjaldþrota kruss og þvers. Ofan á annað tróð Árni Tómasson skilanefndarformaður bróðursyni sínum í slitastjórnina, Páli Eiríkssyni. Þetta eru sérfræðingar í sjálftekt, sem mafían þarf á að halda.