Sérstæð túlkun alþjóðalaga

Punktar

Hæstiréttur Noregs dæmdi hælisleitendum refsilaust að sýna fölsuð skilríki. Vísaði til flóttamannasamnings Sameinuðu þjóðanna. Lögreglustjóri Suðurnesja er öfugrar skoðunar, telur áfram rétt að ofsækja hælisleitendur. Fyrir það er Sigríður Björk Guðjónsdóttir verðlaunuð með lögreglustjórn höfuðborgarsvæðis. Hæstiréttur Noregs er merkari túlkandi alþjóðalaga en nýi fasisti Flokksins. En hér ríkir Hanna Birna ofar lögum og rétti. Á bara eftir að láta falsa eitt skjal til að staðfesta skoðun Sigríðar. Sem mun svo staðfesta, að Hanna Birna beiti aldrei minnsta þrýstingi. Ég klóra þér, þú klórar mér og málið er dautt í faktúrufölsunarfélaginu.