Ráðamenn ríkisins og stofnana þess vilja ekki heyra það, sem Eva Joly segir. Þeir heyra ekki, að hún vill, að Valtýr Sigurðsson ríkissaksóknari víki úr embætti. Þeir heyra bara, að hann eigi að víkja sæti í málum saksóknara í málum bankahrunsins. Þeir heyra ekki, að hún vill, að skipaðír verði þrír sérstakir saksóknarar, einn fyrir hvern banka. Þeir heyra bara, að fjölga beri fólki í rannsókn bankahrunsins. Með allri þessari misheyrn komast ráðherrar, embættismenn og rannsóknamenn að þeirri niðurstöðu, að þeir séu sammála Evu Joly. Í rauninni eru þeir að reyna að bola henni frá rannsókn.