Setti ykkur í ruslflokk

Punktar

Lýðskrumarinn kom ykkur í ruslflokk hjá Fitch, svo að engin lán munu koma. Vakti umræðu um afnám tollfrelsis í Evrópu fyrir íslenzkar vörur, sem væri rothögg. Vakti umræðu um löndunarbann á íslenzkum fiski í Bretlandi, sem er þekkt fyrirbæri í sögunni. Gott, að hann er farinn í hanastél í Indlandi. Hann gerir þá ekki annað verra næstu dagana en að eyða fé okkar. Gott hjá Össuri að fara ekki með honum, hefði gert ferðina dýrari. Þið getið þakkað ykkur nýjustu afrek lýðskrumarans. Dönsuðuð blint eftir pípu kampavínsklúbbs Sigmundar Davíðs og æstuð lýðskrumarann á Bessastöðum í þessa þjóðarmartröð.