Sex ógnarvopn

Punktar

Nokkur mannskæð vopn eru hlutfallslega hættulegri lífi og limum Íslendinga en ýmis vopn, sem valda usla í útlöndum. Sýnilegasta ógnarvopn landsins er bíllinn, sem jafnt og þétt krefst tuttugu mannslífa á ári. Það jafngildir tvö þúsund Spánverjum á ári og tuttugu þúsund Bandaríkjamönnum á ári. … Þótt hryðjuverkin á Manhattan og í Madrid jafnist ekki á við bílinn, höfum við ekki farið þá leið að banna hann. Við teljum okkur ekki geta án hans verið og gerum ótal hluti til að draga úr ógninni, leggjum hringtorg, setjum upp hraðahindranir, byggjum mislæg gatnamót, spennum bílbelti. …