Sextán forréttindamenn

Punktar

Sextán forréttindamenn Sjálfstæðisflokksins fengu hver um sig nánast gefnar tugmilljónir árin 1988-1989 í stofnfjárbréfum Spron: Árni Sigfússon, Birgir Ísleifur Gunnarsson, Björn Bjarnason, Davíð Oddsson, Friðrik Sophusson, Geir H. Haarde, Inga Jóna Þórðardóttir, Júlíus Vífill Ingvarsson, Lára Margrét Ragnarsdóttir, Magnús L. Sveinsson, Markús Örn Antonsson, Pétur Blöndal, Sólveig Pétursdóttir, Vilhjálmur Egilsson, Vilhjálmur Vilhjálmsson og Þorsteinn Pálsson. Þeir fengu bréfin fyrir slikk og gátu síðan selt þau með þrjátíu milljón króna hagnaði hver. Forréttindastétt, sem segir sex.