Siðblindu lagatæknarnir

Punktar

Samningamenn höfða ekki mál gegn þeim, sem þeir eru að ljúka samningum við. Falli IceSave, flyzt það ekki úr umræðunni. Þeim er ekki bezt treyst, sem neita að borga það, sem aðrir telja þá eiga að borga. Erlendir bankar og sjóðir hafa áhyggjur á undirstöðum fjármálasiðferðis á Íslandi. Augljósar staðreyndir stinga í stúf við furðulegar greinar sjö lagatækna náhirðar Davíðs. Ég safna þessum greinum. Til að minna á, að siðlegt er og hagkvæmt að fallast á niðurstöðu samninga um IceSave IV. Ég vil ekki vera hluti siðspilltrar og ábyrgðarlausrar þjóðar Davíðs. Styð samkomulagið eindregið.