Siðrofi segi af sér

Punktar

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson hélt leyndum hagsmunum sínum af peningum eiginkonu sinnar í skattaskjóli á Tortola. Leyndum fyrir öllum, þar á meðal samherjum og samstarfsflokki. Sumir segja það í lagi, því hann hafi ekki brotið lög. Málið snýst þó um siðrof fremur en lögbrot. Forsætisráðherra verður að vera hafinn yfir grun um hugsanlega hagsmunagæzlu. Hafði færi á að gæta hagsmuna þessara peninga. Einnig segja verjendur, að Sigmundur sé ekki tengdur eiginkonu sinni. Hann er þó ekki bara tengdur henni, heldur öllu sínu „tengdafólki“. Orðið segir allt, sem segja þarf um þá lélegu röksemd. Sigmundur Davíð á að segja af sér.