Silfurmoli í Hafnarfirði

Punktar

Tilveran … Tilveran væri fjölsótt, ef hún væri í bænum. Reykvíkingar fara ekki til Hafnarfjarðar út að borða og Hafnfirðingar borða heima hjá sér. Samt heldur silfurmolinn við Linnetstíg áfram að bjóða of fáum gestum sífellt batnandi matreiðslu og elskulega þjónustu fyrir lágt verð að hætti Laugaáss, Fish Gallerys og Jómfrúarinnar í Reykjavík. Ef Hafnarfjörður væri menningarbær, mundi bæjarstjórnin heiðra staðinn á minnisstæðan hátt og reyna að efla veltu hans. …