Lögreglustjórinn í Keflavík og lygari Hönnu Birnu áttu þrjú símtöl á Degi hins fræga skjals. Í kjölfar þeirra bætti lygarinn óstaðfestu slúðri við skjalið. Greinilega ættað frá lögreglustjóranum í Keflavík. Hanna Birna flutti slúðrara sinn síðan sem lögreglustjóra til Reykjavíkur í stað þess, sem flúið hafði af hólmi. Hún reyndi oft að hindra framgang réttvísinnar. Meðal annars kvartaði hún yfir nákvæmni hennar og einkum yfir rannsókn á tölvunni, sem síðan upplýsti málið. Hanna Birna misþyrmdi fjölda manns með trylltum yfirgangi. Slær jafnvel Davíð út í pólitísku ofbeldi. Hún er því sjálfkjörin flokksformaður bófaflokksins.