Skálkaskjólið

Punktar

Guði sé lof fyrir okkar Lúterskirkju. Hún er róleg og frjálslynd, leggur meira upp úr manngæzku og góðverkum Nýja-Testamentisins en mannvonzku og hryðjuverkum Gamla-Testamentisins. Víða annars staðar leggja trúfélög lóð sitt á vogarskál illsku og ofbeldis, haturs og hefnigirni. … Sumar erlendar mótmælendakirkjur eru síður en svo til fyrirmyndar. Nærtækast er að minnast klerksins Ian Paisley, sem hefur lagt nótt við dag að koma illu af stað á Norður-Írlandi. Víða í Bandaríkjunum hafa söfnuðir af meiði mótmælenda orðið ofsafengnir og róttækt hægri sinnaðir. … Sama er uppi á teningnum í öðrum trúarbrögðum.