Skerjafjörður er afskekktur

Punktar

Umferðarmiðstöðvar eiga auðvitað að vera nálægt umferð og miðborgum. Annars þjóna þær ekki hlutverki sínu samkvæmt orðsins hljóðan. Umferðarmiðstöð í Skerjafirði er út í hött. Fólk þarf að taka á sig langan krók til að komast þangað. Hvort sem það gengur eða hjólar, fer í eigin bíl eða leigubíl, í strætó eða rútu. Umferðarmiðstöð Reykjavíkur á að vera sem næst Kvosinni, Reykjavíkurflugvelli og mótum Miklubrautar og Kringlumýrarbrautar. Því ætti að byggja umferðar- og flugstöð nálægt núverandi umferðarmiðstöð sunnan við horn Milkubrautar og Njarðargötu. Ekki á afskekktum stað í Skerjafirði.