Visir.is segist vita, að sjálfstæðisfólkið Guðlaugur Þór Þórðarson, Illugi Gunnarsson og Guðfinna Bjarnadóttir hafi fengið háa prófkjörsstyrki 2006. Tvær milljónir frá einstökum fyrirtækjum. Ennfremur samfylkingarfólkið Helgi Hjörvar og Steinunn Valdís Óskarsdóttir, svo og framsóknarmaðurinn Björn Ingi Hrafnsson. Þetta þrýstir á, að frambjóðendur geri strax skýra grein fyrir fortíð sinni. Milljónastyrkir fyrirtækja til prófkjörsfólks verða hæglega túlkaðir sem mútur. Það fylgir fréttinni, að fyrirtækin séu hin sömu og áður hafa verið nefnd. Séu þar fremst í flokki FL-Group og Landsbankinn.