Frá Björgum í Köldukinn til Bjargakróks við Skjálfandaflóa.
Úr Bjargakrók má fara fjöruna áfram til Náttfaravíkur og er þá farið um gat í berginu aðeins 100 metrum frá Bjargakróki. Heitir þar Ágúlshellir og var sprengt tíu metra haft í hellinum árið 1973 til að komast í gegn. Gæta verður sjávarfalla á þessari leið. Baldvin Sigurðsson í Naustavík þurfti að eyða jólanótt í hellinum seint á nítjándu öld, tepptur af brimi og stórhríð. Þessi leið er ekki fær hestum.
Förum frá Björgum til norðurs austan við Ógöngufjall í Bjargakrók.
4,9 km
Þingeyjarsýslur
Nálægar leiðir: Naustavík.
Skrásetjari: Jónas Kristjánsson
Heimild: Herforingjaráðskort