Efast um, að SDG og BB sjái skriftina á veggnum (Daníel 5:25). Alténd ekki forsætis, hann lifir í draumaheimi silfurskeiðunga. Fjármálaráðherra lætur telja sér trú um, að fylgishrun flokksins og hrunið traust hans sjálfs sé tímabundinn vandi. Eins og sannir sjálfstæðismenn sögðu um hrunið: Það er meint hrun og tímabundinn vandi. Íslenzkir pólitíkusar og spunafólk hugsa til skamms tíma í senn, kannski fram á vor. Segja sem svo, að komi tímar og komi ráð. SDG verður varla í vandræðum með stjarnfræðileg loforð eftir þrjú ár. Og BB trúir því jafnvel, að hann verði enn flokksformaður eftir þrjú ár.