Bankastjórarnir nýju njóta ekki trausts. Skilanefndirnar nýju njóta ekki trausts. Bankaráðin nýju njóta ekki trausts. Endurskoðendurnir nýju njóta ekki trausts. Allt er þetta af gefnum tilefnum. Til brunaliðsstarfa hafa verið kallaðir brennuvargar úr fortíðinni. Eftir að hafa komið þjóðinni á hausinn er ríkisstjórnin svo forstokkuð, að hún reynir að hindra björgun. Með því að segja ekki upp öllu þessu nýja rusli og segja ekki upp forstjórum Seðlabanka og Fjármálaeftirlits. Með því að segja ekki af sér sjálf.