Skrímsladeild á vergangi

Punktar

Nýleg könnun sýndi, að Sjálfstæðisflokkurinn er klofinn í tvo jafna helminga í afstöðu til IceSave. Fylgjendur nýja samningsins eru þó ívið fleiri. Meðal þingmanna flokksins eru hlutföllin önnur, þingmenn styðja flestir formann sinn. Tími ögurstundar í flokknum. Bjarni Benediktsson fremur hið klassíska föðurmorð. Segir skilið við Davíð og lýsir yfir sjálfstæði sem formaður. Nýi stóðhesturinn hrekur gamla stóðhestinn á vergang. Svona er lífið. Sennilega kemst Bjarni loksins núna undan skugga Davíðs, verður alvöru formaður. Hann heldur flokknum, en skrímsladeildin kemst á vergang. Sem er hið bezta mál.