Allur þorri skuldara er á réttu róli. 88% eru í skilum. Margir hafa nýtt sér úrræði, sem liðka fyrir skuldurum. Þúsundir hafa nýtt sér lækkun höfuðstóls, þúsundir hafa nýtt sér greiðslujöfnun og þúsundir hafa lengt lánstímann. Í stórum dráttum eru mál skuldara því þegar komin í lag. Undantekningarnar eru þó hastarlegar. 1360 skuldarar skulda meira en tvöfaldar eignir sínar. Þeim verður ekki hjálpað með frekari afslætti af höfuðstól. Þeim á bara að hjálpa í gjaldþrot. Sjá til þess, að þeir geti byrjað nýtt líf á núlli, en ekki í mínus. Það er óleysti vandinn, sem ný lyklalög og gjaldþrotalög munu leysa.