Skyndifylgi Framsóknar

Punktar

Framsókn hefur í tvígang með stuttu millibili sópað upp skyndifylgi. Í bæði skiptin gerði hún það með framgöngu, sem stenzt engin rök. En passaði sig á, að bíða með bombuna fram á síðustu metra. Á einni viku hafa allra vanhæfustu kjósendurnir enga getu til að greina bombur frá staðreyndum. Fyrir ári hlupu þeir eftir loforði um tékka í pósti. Núna hlupu 2000-3000 eftir loforði um að halda helvítis múslimunum niðri; undirliggjandi rasismi fékk útrás. Þarna eru að baki skæðir spunakarlar. Ég get þó huggað mig við, að rækilega hefur verið staðfest margtuggin klisja mín um, að þúsundir Íslendinga séu bara fábjánar.