Smákóngar stjórna

Punktar

Jón Gíslason er eins og Páll Egill Winkel. Annar forstjóri Matvælastofnunar og hinn forstjóri Fangelsisstofnunar. Páll Winkel hefur þó komizt heldur lengra, því hann hefur búið til þriðja dómstigið ofan við Hæstarétt. Situr þar sjálfur og styttir dóma hrunverja meira en annars fólks. Sérmeðferð hans fékk Baldur Guðlaugsson. Jón Gíslason hefur ekki komizt eins langt, en hefur þó tekizt í átta mánuði að hunza reglugerð um merkingu erfðabreyttrar vöru; matvæla og fóðurs. Sérvitru smákóngarnir komast upp með þetta rugl. Ekki einu sinni áminntir fyrir afglöp. Því heldur séríslenzka ruglið áfram.