Sá, sem stendur á torgum og þeytir smjörklípum í allar áttir, er ófær sem seðlabankastjóri. Enginn seðlabankastjóri heims hagar sér eins og Davíð Oddsson. Hegðun hans skaðar virðingu bankans og getu hans til að hjálpa þjóðinni. Hvers vegna þarf Seðlabankinn að hjálpa þjóðinni? Vegna þess að fyrrverandi forsætis bjó til villta vestrið í fjármálum landsins. Með hjálp frjálshyggjugaura í hópi aðdáenda sinna. Þessi fyrrum forsætis er einmitt sá, sem nú er seðlabankastjóri. Þannig er vandi okkar í senn fortíðarvandi og nútíðarvandi. En hvor tveggja vandinn heitir Davíð Oddsson þjóðarfaðir.