Sofið rótt í heimskum friði

Punktar

Mikill fjöldi fávísra kjósenda hefur áhyggjur af eignaspjöllum. Ef þau eru nógu lítil. Þeir eru ósáttir við, að andófsfólk kippi sjónvarpsköplum úr sambandi. Það eru kölluð eignaspjöll, guð sé oss næstur. Þessum sömu fávísu kjósendum dettur ekki í hug að hrópa um eignaspjöll, sem ríkisstjórnin veldur venjulegu fólki. Þau nema milljónum króna á hvert mannsbarn. Það eru of stór eignaspjöll til að hafa áhyggjur af. En ekki beygla neitt, ekki úða skyrinu, leyfið okkur að sofa áfram rótt í okkar tröllheimska friði.