Ekki er von á góðu, þegar þriðjungur þjóðar trúir, að sólin snúist kringum jörðina. Sá þriðjungur getur líka trúað, að hann geti fengið tékka í pósti. Trúað loforðum siðblindra bófa, sem síðan segja loforðin hafa verið skoðanir eða varnaglar. Getur trúað á Hans Ómöguleika. Trúað að matvæli séu óholl eða eitruð í Evrópu. Að eldhaf geisi í Evrópusambandinu og álfan sé að breytast í kaldakol. Heimssýn þessa fólks er Klörubar á Kanarí; það hefur aldrei séð umheiminn, ekki frekar en Guðni. Fávísa fólkið, sem trúir, að sólin snúist um jörðina, trúir líklega að jörðin sé flöt. Og snúist kringum kaupfélagið.