Undir forustu Moggans komu fjölmiðlar að litlu gagni í fréttum af góðsemi viðskiptaráðherra. Að ráði almannatengla spann hann ímyndaða flík úr tvinna. Fjölmiðlarnir sögðu frá flíkinni, en nefndu fáir þráðinn. Björgvin G. Sigurðsson bætti ekki hag skuldunauta íbúðalána eða þeirra, sem greiða alls kyns seðilgjöld mánaðarlega. Aðgerðir hans gegn bankasvindli voru einkum sýndarmennska, sem vék hjá veigamestu greiðslum fólks. Ástæða væri til að klappa, ef hann fengi Alþingi til að setja almennt og algert bann við fitti, seðilgjöldum og uppgreiðslugjöldum í samfélaginu. En ekki fyrr.