Staðlausir stafir

Punktar

Nýi GPRS síminn minn er í þráðlausu sambandi við fistölvuna mína og veraldarvefinn. Hvar sem erlend símafélög eru í reikisambandi við íslenzk símafélög er hægt að vera í sambandi, hvar sem er, á kaffihúsi, á bekk eða í lestinni. Maður les póstinn og svarar honum, skoðar fréttir dagsins. … Með hverju árinu hefur orðið auðveldara að ferðast með vinnuna meðferðis. Staðsetning er ekki sami þáttur í lífi margra og áður var. Þessi leiðari er skrifaður á svölum við Rialto-brú í Feneyjum. Ég er búinn að sjá Moggann og Fréttablaðið á vefnum og veit, að pólitíkin er við það sama. …