Steikin var ekki í steik

Punktar

Farðu ekki í Hereford steikhús við Laugaveg 53 til að fá ofeldað lambakjöt og allra sízt ömurlegasta fisk bæjarins. Farðu heldur til að fá eðlisgott, vel verkað og meyrt U1 nautakjöt, sem er selt eftir vigt. Það er peninganna virði, þótt U2 sé innanfeitara og meyrara. … Vandlega hönnuð veitingastofa í nýdönskum stíl á annarri hæð rétt neðan við Kjörgarð snýr stórum gluggum að götunni. Ljóst parket á gólfi, ljós límviður í borðum, ljós sveigiviður í þægilega bognum stólum, ljósar leðursessur og ljós borðbúnaður er allt í samræmdum stíl. …