Snúum Pussy Riot upp á Ísland. Hræsnarar hefðu hneykslast, ef íslenzkar konur hefðu sungið í dómkirkjunni um forseta Íslands. Andlegir bræður yfirþjófsins í Kreml hefðu gengið berserksgang í Mogganum og Smáfuglunum. Söngkonurnar hefðu verið dregnar fyrir dómstól. Hins vegar hefðu þær ekki verið dæmdar í tveggja ára fangelsi, heldur sektaðar um milljón fyrir að segja satt. Það er allur munurinn á þjófræðisríkinu Íslandi og þjófræðisríkinu Rússlandi. Þótt Pútín sé rummungsþjófur og rétttrúnaðarkirkjan argasta afturhald, þá eru íslenzkir bófar og bjánar ekki langt undan. Við köstum steinum úr glerhúsi.