Þótt góður meirihluti vinstri grænna styðji aðild að Evrópusambandinu, gerir formaðurinn það ekki. Eins og víðar í pólitík er unga fólkið opið fyrir aðild, en flokkseigendur andvígir. Vegna andstöðu Steingríms Sigfússonar missir flokkurinn aðild að mesta framfaramáli nútímans. Formaðurinn er líka ótrúlega hallur undir Davíð Oddsson. Hvort tveggja mun takmarka svigrúm flokksins í næstu kosningum. Honum getur gengið vel, ef hann verður þá eini flokkurinn í andstöðu við Evrópusambandið. En hann verður ekki tekinn með í ríkisstjórn upp á þau býti. Það verður eftir daga Steingríms formanns.