Stjórnarstefna eymdarinnar

Punktar

Stefna ríkisstjórnarinnar er skýr, þótt Ögmundur Jónasson maldi í móinn. Hann ræður bara ekki. Samkvæmt stefnunni skal almenningur borga í topp skaðann af því, sem hann framdi ekki. Samkvæmt stefnunni skal enginn hinna viðriðnu gjalda neitt. Ekki hinir hamslausu og græðgisvæddu bankamenn og kúluprinsar, ekki Finnur Sveinbjörnsson og Karl Wernersson, ekki Ólafur Ólafsson og Björgólfur Thor Björgólfsson. Sigurður Einarsson og Hreiðar Már Sigurðsson ganga lausir, þótt erlendir fjölmiðlar kalli Kaupþingsmálið mesta bankarán sögunnar. Þetta er allt í samræmi við stjórnarstefnu eymdarinnar.