Háskóli Íslands flýtur sofandi að feigðarósi. Rektorinn situr með hendur í skauti meðan ýmsir starfsmenn skólans misnota aðstöðu sína. Leyndi nafni kristinfræðikennara, sem laug upp á sig doktorsprófi. Leyfði pólitískum slagsmálahundi að skipuleggja röð fyrirlestra í skólanum á vegum stofnana últra hægri manna í Bandaríkjunum. Lét afskiptalaust, að sami aðgerðasinni væri dæmdur fyrir ritstuld. Leyfði götustráki í kristinfræði að sýna glærur með óhróðri um vantrúarfólk. Leyfði klappliði líftæknifyrirtækja að halda uppi áróðri á vegum háskólans. Eins af hundrað beztu í heimi? Gleymdu því.