Stolið af hjartveikum börnum

Punktar

Björgólfsfeðgar, bankastjórar þeirra og bankaráðsmenn eru svo siðlausir, að þeir lugu tugi milljóna út úr styrktarsjóði hjartveikra barna. Sömdu um að geyma féð í skuldabréfum ríkis og sveitarfélaga. Grýttu því hins vegar í sukkið og létu það hverfa eins og dögg fyrir sólu. Þetta er óvenjulega ógeðslegur þáttur í svínaríi Landsbankans. Því miður eru fleiri ábyrgir en Björgólfsfeðgar, bankastjórar og bankaráðsmenn. Deildarstjórar og starfsmenn bankans fullyrtu ranglega hvað eftir annað, að farið væri eftir samningnum. Allt það starfsfólk á heima á Litla-Hrauni með Björgólfsfeðgum og kompaníi.