Stóra fyrsta apríl gabbið

Punktar

Útrásarbankar og útrásarvíkingar mútuðu Sjálfstæðisflokknum, einstökum stofnunum hans og frambjóðendum til að makka rétt. Meirihluti núverandi þingmanna Sjálfstæðisflokksins tengist kúlulánum, vafningum, skattsvikum, stjórnun banka og sjóða. 40% þjóðarinnar trúir enn á kenninguna um að græða á daginn og grilla á kvöldin. Allt þjóðskipulagið er gegnsósa af spillingu, jafnvel dómararnir eru skipaðir af Birni Bjarnasyni. Hér verður ekkert uppgjör, spillingin heldur þjóðinni í heljargreipum. Jafnvel ríkisstjórnin er farin að mylja makríl undir kvótagreifana. Þetta er þjóð örlaga-fávita.