Ögmundur Jónasson og Steingrímur J. Sigfússon eru stóra vinstri plágan. Dans þeirra setti síðustu ríkisstjórn úr skorðum. Líf hennar fjaraði út á síðari hluta kjörtímabilsins, meðan fjandvinirnir tókust á. Í gær skrifaði ég um aðild hvors um sig að sökinni. Ætla því að láta hana liggja milli hluta að þessu sinni. En niðurstaðan er skýr. Gamlingjarnir eiga að víkja af vígvelli og láta öðrum sviðið eftir. Þeir eiga báðir að segja af sér þingmennsku og hleypa varamönnum að. Það gengur ekki, að þeir félagar eyðileggi ekki bara fyrst heila ríkisstjórn, heldur eyðileggi síðan heila stjórnarandstöðu.