Ögmundur Jónasson stóribróðir undirbýr stofnun tveggja stofnana til að bæta samfélagið. Happdrættisstofu til að hindra veðmál á vefnum og klámstofu til að hindra dónaskap á vefnum. Færi eru til að smíða fleiri atvinnu-eflandi stofur til að skipuleggja lífið og tilveruna. Hvað um friðarstofu til að hindra móðganir í garð múslima. Kannanastofu til að hindra truflandi áhrif skoðanakannana. Reykingastofu til að banna tóbak í bíómyndum og skáldsögum. Bófastofu til að skikka bófaflokka til að vera í auðþekktum búningum. GPS-stofu til að skrá staðsetningu allra borgara. Stóri bróðir vakir yfir þér.