Sukk hvítþveginna hjarðdýra

Punktar

Landsins mestu silkihúfur voru á haugafylleríi lífeyrissjóða með landsins mestu bófum. Þar á meðal grátkarlarnir Vilhjálmur Egilsson atvinnurekenda og Friðrik Arngríumsson kvótakónga. Vilhjálmur er aumur og kallar sukk sitt “hjarðhegðun”. Fékk samt milljónir á milljónir ofan til að gæta hagsmuna lífeyrisþega. Nær hefði verið að fá hross til þess, þau hefðu gert það frítt að “sýna hjarðhegðun”. Afleiðingin er, að lífeyrir lækkar víða um 10% eftir að hafa lækkað 10% fyrir ári. Dregin var upp nefnd innherja undir stjórn Stefáns Halldórssonar til að hvítþvo hjörðina. Þetta lið á heima í fangelsi.