Ég efast um, að bófar séu í þingflokki Framsóknar, því að þingliðinu var að mestu skipt út í síðustu kosningum. Þar er hins vegar slæðingur af bjánum, sem halda uppi dampi í hálftíma hálfvitanna á Alþingi. Rugla þar út í eitt. Í þingflokki sjálfstæðismanna eru líka bjánar, sem taka þátt í hanaslagnum í hálftíma hálfvitanna. Þar eru þó enn fleiri bófar, sem eru með syndirnar á bakinu. Þar á meðal eru kúlulán, þjófnaður, skattsvik, umboðssvik, eyðing sparisjóða og fleiri glæfrar. Nánast ekkert er um slíka bófa í þingflokkum ríkisstjórnarinnar. En þar er slæðingur af bjánum eins og annars staðar.