Enn einu sinni vil ég endurtaka það margsagða. Gersamlega siðlaust er að afskrifa skuldir kvótagreifa og fjárglæframanna og afhenda þeim síðan reksturinn aftur. Þetta hafa bankarnir verið að gera, eru enn að gera og ætla að gera áfram. Glæpamennirnir, sem stjórna bönkunum, sjá ekkert rangt við þetta, af því að þeir eru sjálfir glæpamenn. Ríkisstjórnin hefur aldrei gert neitt í þessu, enda skilur hún ekki siðferði. Gylfi gerði ekkert, Árni Páll og Steingrímur gera ekkert. Þeir eru partur af gamla Íslandi. Alþýða manna þarf að taka valdið í sínar hendur og svæla glæpalýðinn úr bönkunum.