Svarað með skætingi

Punktar

Steingrímur J. Sigfússon er þreyttur og pirraður. Hefur haft alltof mikið að gera sem ráðherra. Segist ekki nenna að svara enn einni spurningu um afstöðu þingmanna vinstri grænna til IceSave. Fjórir þingmenn flokksins hafa samt ekki sagt okkur, hvort þeir verði andvígir IceSave eða muni sitja hjá. Það ræður úrslitum um örlög málsins og líf ríkisstjórnarinnar. Eðlilegt er því, að fjölmiðlar spyrji í síbylju um stöðuna. Ef Steingrímur hefur upplýsingar, sem aðrir hafa ekki, á hann að deila þeim með þjóðinni. Það virkar illa að svara spurningunni með pirringi og skætingi. Þetta mál má ekki hanga lengur.