Svipuórar bossadólgsins

Punktar

Í nokkurra daga fjarvist frá internetinu missti ég af fréttinni. Mótherjar aðildar Íslands að Evrópu buðu frægum kynlífsóradólgi brezkum til landsins. Þeir kölluðu Nigel Farage “einn þekktasta stjórnmálamann Bretlands”. Samt er pólitíkusinn bara frægur fyrir að láta hórur lemja sig með svipu. Hann fær þær til að taka sig á hné sér og lemja sig á bossann. Hans er stundum getið í grínþáttum og er jafnan hafður í flimtingum. Heimsýn uppi á Íslandi er árum saman eini aðilinn, sem hefur sýnt Farage virðingu. Hí á Ragnar Arnalds og þingmennina Sigurð Kára Kristjánsson og Bjarna Harðarson.