Sýndarveruleiki excel

Punktar

Harmsögur úr heilsugeira eru dagleg staðreynd. Tölur úr excel eru hins vegar ekki staðreynd, heldur ímyndun, byggð á vali. Upphaf og endir ferils eru valdir punktar. Fast gengi eða laust eru valdir punktar, líka aðferðir við umreikning á lausu gengi yfir í tegund af föstu gengi. Fjármagnskostnaður er fyrra val um að sauma að stofnun og er ekki rekstrarkostnaður. Skortur á viðhaldi og endurnýjun tækja á sinn þátt. Í spítalarekstri þarf líka að huga að mannfjölda, aldurssamsetningu og aðkomu ferðamanna. Slíkt gerir excel að sýndarveruleika í töflu og grafi. Harmsögur úr heilsugeira eru hins vegar hin daglega staðreynd.