Aðdáendum Ólafs Ragnars Grímssonar finnst harla sniðugt, að hann tali út og suður um forsetatíð sína. Hann talar þar eins og pólitískur refur, sem hann einmitt er. Pólitískur refur, sem taldi aðdáendum sínum trú um, að hann væri maður alþýðunnar. Varð svo frægastur af vinskap við innlenda útrásarbófa og erlenda harðstjóra í Kína, Indlandi og Arabíuskaga. Bjargaði sér fyrir horn með því að koma IceSave fyrir dómstól. Er enn að gæla við Kína og Indland og lýsa frati á Evrópu. Fyrsti forsetinn, sem talar þokukennda íslenzku, þegar hann tjáir sig um áform sín. Og heimskir aðdáendurnir kyssa alltaf vöndinn.