Taumlaus frekja kínversk

Punktar

Enn einu sinni verður utanríkisráðuneytið að þola taumlausa frekju Kínverja. Kominn er tími til að sendifulltrúum glæparíkisins verði sagt að halda kjafti og yfirgefa ráðumeytið. Ennfremur er kominn tími til að um slíkt sé gefin út opinber yfirlýsing á hreinni íslenzku. Svo að fyrri kurteisi okkar manna valdi ekki misskilningi. Því miður hefur Össuri ráðherra mistekizt að halda uppi reisn Íslands. Ekkert ríki leyfir froðufellandi sendiherrum að verða sér til skammar inni á opinberum stofnunum. Eins og önnur siðmenntuð ríki velur Ísland sjálft sína eigin gesti án þess að spyrja Kína um leyfi.