Þægindi fyrir þig eða þá

Punktar

Það var þægilegt fyrir þrælahaldarana að hafa krónu í hruninu. Þá var hægt með gengislækkun að velta öllu yfir á þrælana. Önnur var staðan í kreppunni á Írlandi, Spáni, Portúgal, Grikklandi. Þar var ekki hægt að velta tjóninu yfir á þrælana með því að rýra tekjur þeirra. Þess vegna voru þeir betur settir í evrulöndum en í krónulandinu. Þegar menn tala um þægindi af krónu, eru þeir að tala um þægindi þrælahaldaranna, ekki þrælanna. Þægindi Jóhönnu og Sigmundar, Steingríms og Bjarna Ben. Þægindi seðlabankastjóra og annarra hagstjóra. Þeir gátu haldið áfram hrunversku ástandi eftir sem fyrir hrun.