Ég skil ekki æsinginn út af hlutleysi þriggja þingmanna vinstri grænna. Er ekki kenningin sú, að þingmenn eigi að fara eftir sannfæringu sinni? Er ekki Steingrímur líka í fullum rétti til að vera fúll? Þurfa allir flokkar að þramma eftir hergöngu-marsi? Lífið er svo miklu skemmtilegra, þegar það verður flóknara. Ef mynda þarf nýjan og nýjan meirihluta. Eru ekki komin fjárlög? Hver þarf morfís-þingmenn Sjálfstæðis, sem fara þindarlaust með rullur? Vissulega þarf þriðjungur þjóðarinnar heilalausa þingmenn. Við hin þurfum fjölbreytta þverhausa, sem renna út og suður eins og rollur á fjalli.