Ræningjar þjóðarauðs rotta sig saman gegn tilraunum til réttlætis. Sigruðu í forsetakosningunum. Næsta bráð verður uppkastið að nýrri stjórnarskrá. Ólafur Ragnar mærði þá gömlu við innsetningu sína í gær. Kvótagreifar munu fjármagna þessa baráttu eins og alla baráttu gegn hagsmunum þjóðarinnar. Pólitískir bófaflokkar fatta, að fólk þjáist af pólitískri heimsku. Kunna lagið á að strjúka fólki og klappa því, meðan það er rænt og ruplað. Munu á öllum valdastólum leggja stein í götu nýrrar stjórnarskrár. Gera það í sumar á Bessastöðum og í Hæstarétti. Og taka síðan við stjórnarráðinu að vori.