Þeir tengja ekki

Punktar

Fólk á Djúpavogi tengir ekki. Heldur að missir kvótans sé ekki því sjálfu að kenna. Gleymdi samt nýju stjórnarskránni og kaus pólitíska bófaflokka. Trúði, að kvótagreifar gættu hagsmuna byggðar í baráttu við vonda latté-lepjara í hverfi 101. Það er nefnilega ekki hægt að haga sér af fullkomnu ábyrgðarleysi í kjörklefanum og fara svo að væla. Að kröfu kvótagreifa ákváðu bófaflokkar í pólitík, að eign þjóðarinnar á auðlindinni virki ekki. Kvótagreifar eigi kvótann og geti flutt hann hvaðan sem er. Takið eftir: Geti flutt hann hvaðan sem er. Á Djúpavogi og Þingeyri borga fíflin núna fyrir að hafa ekki tengt.