Þekkjum ekki Íslandsmetið

Punktar

Rangt er hjá Hannesi Hólmsteini Gissurarsyni, að bankarán Jón Ásgeirs og félaga sé stærsta bankarán Íslandssögunnar. Um það vitum við ekki. Enn eru ekki öll kurl komin til grafar um bankaránin. Engin skaðabótakrafa er enn komin frá skilanefndum Kaupþings og Landsbankans. Þær kunna að verða hærri. Til gamans má geta þess, að krafan á glæpagengi Jóns Ásgeirs er lægri en tjón þjóðarinnar af síðustu mánuðum Davíðs Oddssonar í Seðlabankanum. Jón Ásgeir er upp á 260 milljarða og Davíð upp á 350 milljarða. Þeir fylgjast raunar að í upphæðum hinir tveir óaðskiljanlegu fjandvinir í ruglinu.